01október

Október mættur...

Jújú mikið rétt október er bara mættur á svæðið..... og styttist þá alveg óðfluga í veturinn, sem ég vona að verði bara snjóléttur í reykjavíkinni enn það má alveg vera snjór í sveitinni þegar ég kem þangað. Þannig nú er bara mál að fara díla við veðurguðina....hahahahahahaha...góður þessi!!!
Var að skoða mndir í tölvunni minn og taka til í greyinu og rakst á þessa ansi skemmtilegu mynd....

af líka þessu fína glóðurauga sem ég fékk í sumar.... vá hvað ég var smart

Helgin annars bara búin án nokurra stórræða og ný skólavika framundan sem einkennist af prófum og skilum á vinnubókum!!!! Því staðreyndinn er víst sú að þessi önn fer bara brátt að verða hálfnuð Ullandi Svo er það bara vinna á Kenny félaga í kvöld og safna peningum því þar er fátækt að ver námsmaður í reykjavík!!!!!
Well hef ekkert merkilegt að blogga um eins og er svo adios.......

HAhahahahahahah tvær á hamborgaratrippi í brekkunni á þjóðhátið

kveðja úr borg óttans
Hilla töff

01. október 2007 klukkan 15:59
Hildur
1 athugasemd
25september

Very well.....

Allt í lagi þá ég skal blogga......
Haustið hefur heldur betur minnt mann á það að veturinn sé að koma og í morgun þegar ég fór út sýndi mælirinn -3 og það var smá hrím á bílrúðunni og langar manni helst bara til að hlaupa aftur undir sæng þegar svoleiðis blasir við manni klukkan 07:45!!!!!!
Skólinn gengur annars bara ósköp ljúft fyrir sig enn sem komið er, og er þetta mest megnis bara eitthvað föndur og dúll (klippa og líma) sem hentar mér alveg afskaplega vel og þessa önnina er ég ekki í einu einasta bóklegu fagi sem er algjör snilld þar sem bókafög hafa ekki verið mín fög hingað til.
Lífið í borginni er svona hva get ég sagt ekki alveg minn bolli og er það alveg á kristaltæru og þegar maður verður búin að skólast þá fer ég og reisi mér sveitabæ í afdölum (eða svona næstum, ætla allaveganna og búa í sveit).


Réttirnar voru svo um þarseinustu helgi og verð ég að segja að þetta voru langskemmtilegustu réttir sem ég man eftir að hafa farið í og spilar margt þar inn eins og t.d veðrið. Fór heim á miðvikudeginum eftir að hafa setið og iðað í skinnið í skólanum um morguninn vegna spennu og svo vara bara skellt sér með safninu ekki á móti haha á fimmtudeginum og steinsofnað níu um kvöldið ræðum það ekkert frekar, enn alveg frábær dagur með frábæru fólki og æðislegu veðri bara smá rok!!! Svo á föstudeginum var mætt í réttir hálftíu til að smalinn Hjalli gæti nú fengið að reka kindurnar einu sinni enn!!! Og opnuðum við Svava okkur bara bjór að því tilefni enda klukkan að ganga tíu. Svo þegar var búið að draga allt í sundur riðum við bara heim með nokkrum stoppum svona!!!!! Og um kvöldið var svo skemmt sér á lvöru sveitaball í Árnesi sem var víst bara ansi skemmtilegt... Ætla láta fylgja nokkra punkta um daginn.....
*Sumir þurftu að fara leggja sig um fimleytið redhead
*Vaðið yfir polla
*Dauður sími
*Poki fullur af greinum
*Brilliant veður
*Fullt af frábæru fólki

Hérna koma svo nokkrar vel valdar myndir:

Hjalli að stytta sér leið fótgangandi (ekki spyrja afhverju)

Glaða Svava mín

Held að vatnið í sveitinni sé eitthvað skrítið á réttardaginn!!!!!

Verið að yfirbuga Ævar og greinapokann

Ótrúlega sæt systkyniSvalur

Læt þetta nú barasta suga í bili enn enn aog aftur besti réttardagur hingað til og á næsta ári fer maður sko barasta á fjall líka tekur allan pakkann!!!

Kveðja Hildur skólastelpa

p.s fleiri myndir í mynaalbúmi

25. september 2007 klukkan 20:17
Hildur
4 athugasemdir
16ágúst

Obbósí...

Bloggaði seinast í maí okay kanski lélegur bloggari!!! Aldrei að vita nema ég fari að bæta úr því og byrji að blogga aftur þegar maður flytur til borg óttans....
16. ágúst 2007 klukkan 09:56
Hildur
1 athugasemd
14maí

Annað blogg í sama mánuðinu...

Ájá nú er að koma sumar og þá er Hildur að vakna í bloggheiminn eða kanski bara þennan mánuðinn..... takk fyrir öll kommentin ég treysti á þig Alla mín!!!!!!!!
Annars þá var helgin bara að fljúga framhjá og var þetta bara ansi skemmtileg helgi sem endaði reyndar með tveggja daga ælu þynnku enn ég var pottþétt bara að taka út þynnkuna fyrir þetta árið svo þetta sleppur alveg og er ég hætt að æla núna sem betur fer.....Svalur
Svo eru það bara tómatarnir alla daga vikunnar sem er ósköp nice enda eru þeir aldrei með læti eða vesen greyin litlu.

Anyway Hildur bloggari þarf að fara sofa núna já sofa til að ná upp svefni eftir svefnlausa helgi.......Ullandi
14. maí 2007 klukkan 21:38
Hildur
1 athugasemd
05maí

Komið sumar vúhú....

Það er komið sumar núna og meira segja maí og fæ ég barasta fiðring í magann við tilhugsunina!!!!!!
Og þar sem ég ætla ekkert að vinna um hlegar í sumar heldur njóta þess þá stefnir þetta í brilliant sumar ekki satt?????
Það helsta sem búið er að plana er:
    # Aðalbjörg og Rúnar hestafólk ætla á hestbakk ekki satt!!!!!
    # Svava ætlar að láta sjá sig í sveitinni
    # Bannað að beila og svo ekki beila á þjóðhátíð skilja þeir sem skilja vilja
    # Útlaginn verður nú eitthvað torkennilegur þar sem hann mun loka klukkan eitt frá 1 júní
    #Það er samt allt í lagi því þá verða bara fleiri eftirpartý
    # og jú svo ætla maður að skella sér í minnsta kosti eina hestaferð!


     
Mun þokki standa í þessum sömu sporum í sumar??

Ekki sprengja aftur svona marga bjóra svava það var ekkert sniðugt!!!!

Og mun þessi svipur sjást í sumar....vonandi


Enn gleðilegt sumar elskurnar og vonandi sé ég ykkur sem oftast í sumar og voanandi með öllara í hendi svona öðru hverju

05. maí 2007 klukkan 11:38
Hildur
1 athugasemd
13apríl

Enn á ný er bara komin....

tími til þess að ég smelli eins og einu punktabloggi hingað inn....... 


  • Páskarnir búnir með öllu sínu tilheyrandi áti og djammi og sást hið ótrúlegasta fólk fara út á lífið að skemmta sér meðan annað fólk gaf sér ekki tíma til þess því það var svo upptekið með kæró að kúra!!!!!!!
  • Sumarið er að koma allaveganna bendir veðrið allt til þess grenjandi rigning og allt í drullu típískt Ísland bara.
  • Helgin komin og ekkert planað nema aðuvitað taka rúnt og kíkja svo örugglega á Útlagann þar sem strafsfólkið gæti farið að sakna manns ef maður myndi sleppa einni helgi....

Held ég sé bara alveg dottin úr bloggæfingu þar greinilega að fara rifja upp hvernig maður bloggar...... Þangað til næst!!!!!!!!!!!!1


13. apríl 2007 klukkan 13:38
Hildur
2 athugasemdir
31janúar

Komin tími til...

Þar sem ég sit núna bara heima og má víst lítið gera þá er um að gera að blogga eins og eitt stykki blogg. Og hef nú barasta ákveðið að hafa þetta punktablogg.... Til að segja hvað drifið hefur á daga mína síðan 10 janúar.

  • Ekkert gerðist nema ég var bara að vinna milli 10-16 janúar.
  • 17. janúar varð ég svo tvítug og þann 20 janúar hélt ég svo upp á afmælið mitt í góðra vina hópi og miklum glensi.
  • Sunnudaginn 27 janúar eða seinasta sunnudag datt ég svo af hestbaki og marði ég vel  á mér rófubeinið og mjóbakið með þeim afleiðingum að ég hef ekkert mátt né geta gert neitt alla þessa vikuna og er núna byrjuð að briðja einhverja rauðar skemmtilega sterkar töflur sem gera það að verkum að ég get setið allavega núna. Mæli ekki með þessu
  • Svo þegar það voru ekki helgar og ég ekki meidd var ég að vinna..

Sem sagt mjög óspennandi líf sem ég lifi þessa dagana það er alveg ljóst, held ég sé líka aðeins búin að fara út 2 kvöld í öllum þessum mánuði enda er geðheilsa mín að verða mjög slöpp......
Ljósi punkturinn í lífi mínu núna er samt að upphæðinn á reikningnum mínum mun hækka all verulega á morgun þar sem það er útborgunardagur..... SJIBBÍ....
                                                     Sjáumst á djamminu
                                                                 Hildur óheppna

31. janúar 2007 klukkan 16:46
Hildur
2 athugasemdir
10janúar

Again...

Þið eruð að sjá rétt ég er að blogga aftur þó það séu ekki liðnir nema fjórir dagar frá síðustu færslu!!!!!!
Var að bæta inn fleiri myndum frá áramótaballinu og eru þetta gott sem allar myndirnar sem égtók fyrir utan þær sem voru af gólfinu og skóm því svo varð myndavéladruslan batteríslaus.
Um helgina var það bara Útlaginn með glimrandi stemmingu og er aldrei að vita nema ég seti allar 3 myndirnar sem ég tók á netið í kvöld eða á morgun.
Hef svo innilega ekkert merkilegt að segja nema ég er með svo miklar harðsperrur þessa dagana að ég labba eins og ég sé með prik um í rassinu....
Enda þetta svo með mynd af jólatrénu okkar í ár enn svona leit það orðið út núna  undir lok jóla þegar kettinum var gjörsamlega búið að takast að rústa því og brjóta eða eyðileggja allt jólaskrautið á því og taka hálfa sériuna af mjög flott eða EKKI



10. janúar 2007 klukkan 23:26
Hildur
Engin athugasemd
06janúar

2007

Þá er bara 2007 komið og vegna þess að ég fékk áskorun um að blogga þá ætla ég bara að láta slag standa og blogga takk fyrir.
2006 fauk auðvitað framhjá án þess að mér tókst að gera neitt marktækt nema byrja og hætta í skóla aftur!!!!!!
Áramótunum eyddi ég á Rauðalæk city þar sem hlutirnir gerast og svo fór ég  með Öllu, Eyva og Eddu á ball á Hellu sem var bara snilldar ball og ekkert smá gaman, þó ég viðurkenni að maður getur orðið ansi kátur af því að drekka kampavín.......Ullandi

                                ÞREFALT COLGATE BORS DAUÐASN

Nýja árið hófst svo á því að nú er maður komin í almennilega 8-16:30 vinnu og frí allar helgar sem er æði, sem kemur sér einmitt vel núna því að það er þrettándinn og annað kvöld verða Ingó og Veðurguðirnir að spila á partý stað suðurland ÚTLAGANUM og að sjálfsögðu hvet ég alla til að mæta enda um alveg hágæða skemmtun að ræða!!!!
Myndaplássið mitt er eitthvað í köku á þessari síðu núna svo ég get ekki bætt inn fleiri myndum og þar sem ég er svo ótrúlega upptekinn þá nenni ég ekki að laga það núna heldur bara eftir helgi þegar enn fleiri geðveikt flottar myndir koma inn....

Sjáumst annað kvöld....

P.S ég verð tvítug 17.janúar sjibbíjei
06. janúar 2007 klukkan 01:54
Hildur
3 athugasemdir
29nóvember

Ég trúi því....

Að einhver allavega Svava eða kanski Alla eða kanski mamma eða eitthvað skoði þetta blogg svona einu sinni í viku og þess vegna ætla ég að blogga núna smáveigis.
Helgi var alveg stórfín fór á ML ball á föstudaginn sem var mjög skemmtilegt og áhugavert og þarf ekkert að ræða það neitt meira, afgangurinn að helginni fór svo í vinnu jámm ég var svo ekkert í fríi eins og áætlað var. Og viti menn vinna um næstu helgi YESSSSSSS

Enn svona annars þá var ég að henda inn myndum úr afmælinu hennar Svövu sem var haldið núna 10 nóvember við mikla kátínu viðstaddra.
Hef svo sem nákvæmlega ekkert fleira að segja svo bara bless eða eitthvað!!!!!
Endum þetta svo á einni góðri mynd!!!!!!
29. nóvember 2006 klukkan 21:50
Hildur
1 athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing